Episode Details
Back to EpisodesErjur um spillingu í veitingarekstri í Suðurnesjabæ
Episode 618
Published 8 months ago
Description
Í lok janúar komu upp erjur í Suðurnesjabæ á milli veitingastaðar í Sandgerði og sveitarfélagsins. Veitingahúsaeigandi á Sjávarsetrinu vændi sveitarfélagið um mismunun og spillingu, Suðurnesjabær sá sig knúinn að svara þessum ásökunum á heimasíðu sínni.
Deilan snýst um það að sveitarfélagið á hlut í veitingastaðnum Röstinni við Garðskagavita og telur veitingahúsaeigandinn að þetta skekki samkeppnisstöðu veitingahúsa í sveitarfélaginu.
Þetta helst heimsótti Suðurnesjabæ og ræddi við veitingahúsaeigandann Örnu Björk Unnsteinsdóttur og bæjarstjórann Magnús Stefánsson um þessa árekstra og af hverju þeir stafa.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson