Episode Details
Back to EpisodesNágrannar Gauksstaða vilja stöðva byggingu smáhýsa við ströndina
Episode 620
Published 7 months, 4 weeks ago
Description
Hópur nágranna jarðarinnar Gauksstaða í Garði í Suðurnesjabæ vill stöðva byggingu 15 smáhýsa við ströndina þar. Húsin eru hugsuð fyrir ferðamenn.
Kæra vegna málsins er nú til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Eigendur jarðarinnar segjast ætla að hefja framkvæmdir við húsin á næstu vikum og að tilraunir til að stöðva framkvæmdirnar skipti engu máli. Húsin sé á deiliskipulagi og að sveitarfélagið Suðurnesjabær vilji fá þau í bæinn.
Fjallað er um þessa deilu í þættinum í dag en einn af kærendunum líkir henni við erjurnar um smáhýsin í Skaftafelli sem svo mikið hefur verið í fréttum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson