Episode Details

Back to Episodes

Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim

Episode 67 Published 8 months, 2 weeks ago
Description

Í þessum þætti fáum við til okkar systurnar og sjúkraþjálfarana Heru Rut og Thelmu Rut Hólmarsdætur, sem starfa á Reykjalundi. Þær hafa sérhæft sig í aðstoð við fólk sem glímir við langvinna verki og standa að átta vikna fjarnámskeiði sem byggir á heildrænni nálgun og nýjustu verkjavísindum, með fræðslu, heimaæfingum og stuðningi.

Við förum yfir hvernig fræðsla um verki, markviss hreyfing og raunhæf verkfæri í daglegu lífi geta hjálpað fólki að róa taugakerfið, draga úr ótta sem oft magnar verkina – og þar með minnka verki og bæta líðan. Um leið eykst öryggi í líkamanum, sem er lykillinn að því að byggja upp meiri getu til að takast á við daglegt líf.

Við ræðum líka mikilvægi stuðnings, spurninga og eftirfylgni í ferlinu. Að auki förum við yfir grunnþættina sem skipta máli þegar kemur að verkjum og bata: næringu, hreyfingu, svefn og félagsleg tengsl – og hvernig þessir þættir vinna saman til að styðja við betri heilsu og meiri lífsgæði.

Í þættinum ræðum við m.a.
  • Hvað “langvinnir verkir” eru (og af hverju þeir geta haldist þó vefir séu að gróa)

  • Hvernig fræðsla og skilningur á verkjum getur breytt upplifun og hegðun

  • Hvernig hreyfing og æfingar geta verið “lyf” – þegar þær eru rétt skammtaðar og aðlagaðar

  • Aðferðir til að lina verki, róa kerfið og lifa betur með þeim í daglegu lífi

  • Stuðning, eftirfylgni og raunhæf skref til að ná stjórn aftur

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us