Episode Details

Back to Episodes

Handboltaæðið: Ísland eins og Argentína norðursins

Episode 614 Published 8 months ago
Description
Íslenska þjóðin er svo stemmd fyrir handboltalandsliðinu að fjölmiðlar hafa verið stútfullir af fréttum af því síðustu vikurnar. Dramatísk fréttamál í heiminum falla í skuggann af liðinu og stórar og smáar fréttir af strákunum okkar fara í hæstu hæðir á leslistum íslenskra fjölmiðla. Eiga Íslendingar heimsmet meðal þjóðanna í þeirri stemningu og því æði sem grípur um sig í samfélaginu þegar handaboltalandsliðið fer á stórmót? Egill Helgason fjölmiðlamaður vill meina það á meðan Stefán Pálsson sagnfræðinur telur Ísland hluta af norrænni hefð að þessu leyti. Rætt er við sænska blaðamanninn Anders Svensson um stöðu handboltans í Svíþjóð og Helga Hrafn Guðmundsson sem sér ákveðin líkindi á milli fótboltans í Argentínu og handboltans á Íslanid. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us