Episode Details

Back to Episodes

Stjórnmálafræðingur segir Trump ganga erinda milljarðamæringa á Grænlandi

Episode 608 Published 8 months, 1 week ago
Description
Hvað er eiginlega á bak við fréttir ásælni Donalds Trumps í Grænland sem Vesturlönd hafa staðið á öndinni yfir síðustu daga? Ástralski stjórnmálafræðingurinn Page Louise Wilson í Háskóla Íslands segir að skýringarnar fyrir hótunum hans liggi í stjórnmálastöðunni í Bandaríkjunum en ekki í rökum sem snúast um varnar- eða utanríkismál. Hún notar hugtök eins og valdaöryggi og efnahagslegt einelti til að lýsa kjarnanum í Grænlandsmálinu. Paige segir Donald Trump vera að ganga erinda milljarðamæringa eins og Elons Musk á Grænlandi en nýlega hafi yfirvöld á Grænlandi ákveðið að semja ekki við fyrirtæki hans SpaceX um fjarskiptaþjónustuna Starlink. Hún segir Trump og Repúblikanaflokkinn þurfa stuðning Musks og fleiri milljarðamæringa í komandi þingkosningum í Bandaríkjunum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us