Episode Details

Back to Episodes

Öryggisógnin af kínverskum strætisvögnum

Episode 606 Published 8 months, 2 weeks ago
Description
Öryggisógnir eru taldar geta fylgt kínverskum strætisvögnum. Í haust var talsverð umræða um það á hinum Norðurlöndunum og hér á landi að kínverskir framleiðendur strætisvagna sem keyptir hafa verið í stórum stíl til þessara landa gætu fjarstýrt vögnunum frá Kína í gegnum tölvukerfi. Í þessari umræðu var meðal annars rætt um mögulegar njósnir og þjóðaröryggi en áhyggjur af slíkum pólitískum afskiptum kínverska ríkisins á Vesturlöndum í gegnum kínversk ríkisfyrirtæki hafa verið talsverðar. Umræðan snerist meðal annars um strætisvagna frá kínverska fyrirtækinu Yutong en Strætó á 15 slíka vagna. Rætt er við Jóhannes Rúnar Svavarsson, framkvæmdastjóra Strætó, og alþjóðastjórnmálafræðinginn Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen Hauksdóttur sem er sérfræðingur í málefnum. Kína. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us