Episode Details

Back to Episodes

Heiti potturinn með Aroni Skúlasyni verkfræðingi og Magnúsi Stefánssyni flugstjóra

Episode 64 Published 9 months ago
Description

Í Heita pottinum setjumst við í pottinn með Aroni Skúlasyni, verkfræðingi sem heldur úti Instagram-reikningnum Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Með okkur er líka Magnús Stefánsson, flugstjóri með meiru, sem hefur – með eiginkonu sinni Lukku – prófað ýmislegt í lífsstíl og næringu í gegnum síðustu 30 ár.

Við ræðum:

  • Nýjar næringarleiðbeiningar í Bandaríkjunum og hvað einkennir þær.

  • Hvernig þetta er frábrugðið ráðleggingum á Íslandi.

  • Carnivore-mataræði og áhrif þess á andlega og líkamlega heilsu Magnúsar.

  • Hvort allar hitaeiningar séu “eins” þegar kemur að fitusöfnun — eða hvort uppruni orkunnar skipti máli.

  • Muninn á áhrifum mettaðrar fitu, fræolía og frúktósa á lifrina.

  • Birtuskilyrði og sólargeislarnir — tengingin við efnaskiptin - starfsemi hvatberanna.

  • Af hverju local food getur skipt máli út frá birtuskilyrðunum þar sem við búum.

  • Hvað gerist í efnaskiptunum á ketó-mataræði: þegar líkaminn fer að nota fitu sem aðaleldsneyti.

Og já… við förum líka í praktísku hliðina sem allir hugsa um en fáir spyrja: hvað gerist í meltingunni á kjötmataræði? Er þetta “klósettpappírs-sparnaðarplan”? :) Og hvað með viðreksturinn — verður hann meiri, minni, eða bara… öðruvísi? Og þurfum við að borða trefjar á kjötmataræði?

Heiðarlegt og forvitnilegt heitapottsspjall — þar sem við reynum að skilja hvað er að breytast, hvað skiptir máli og hvað virkar í alvöru í daglegu lífi.

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us