Episode Details

Back to Episodes

Höfða mál svo ástvinir fái að deyja í friði

Episode 604 Published 8 months, 2 weeks ago
Description
Hópur aðstandenda á Sóltúni ætlar að stefna íslenska ríkinu út af byggingarframkvæmdum við hjúkrunarheimilið. Einar Stefánsson augnlæknir segir að heimilisfólk á Sóltúni eigi rétt á því að fá að verja síðustu mánuðum sínum og árum í friði frá hávaða undan byggingaframkvæmdum. Aðstandendurnir telja að með framkvæmdunum sé verið að brjóta gegn mannréttindum heimilisfólksins. Framkvæmdirnar eiga að standa yfir í tvö ár. Stefna í málinu verður þingfest í febrúar segir lögmaður hópsins. Forstjóri Sóltúns harmar málshöfðunina og segir neyðarástand ríkja á Íslandi vegna skorts á hjúkrunarrýmum og byggja þurfi fleiri. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us