Episode Details

Back to Episodes

Þetta hefur gerst í Venesúela eftir handtöku Maduros

Episode 602 Published 8 months, 3 weeks ago
Description
Eftir að bandaríski herinn gerði loftárás á höfuðborg Venesúela og handtók einræðisherrann Nicolas Maduro hefur skapast ákveðin óvissa um hver það er sem fer með völdin í landinu. Stýrir eftirmaður Maduros, Delcy Rodriguez, Venesúela eða Donald Trump Bandaríkjaforseti? Yfirvöld í Caracas handtóku blaðamenn í kjölfar árásarinnar og stöðvuðu fólk á götum úti til að skoða símana þeirra og athuga hvort það hefði lýst yfir velþóknun á handtöku Maduros. Á sama tíma hafa yfirvöld í landinu sleppt pólitískum föngum og andstæðingum stjórnarinnar í Caracas úr fangelsi. Orðin sem hafa verið notuð til að lýsa ástandinu í landinu eru meðal annars mótsagnir og mótsagnakennt af því að ákvarðanir sem hafa verið teknar eru þess eðlis. Hvað er eiginlega í gangi þarna og stefnir landið í lýðræðisrátt? Rætt er við Vensúelabúa á sextugsaldri sem býr í olíuborginni Maracaibo í Vesturhluta Venesúela um stöðuna í landinu. Einnig er rætt sögukennarann Stefán Ásgeir Guðmundsson sem hefur verið fararstjóri á Kúbu í 20 ár. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us