Episode Details

Back to Episodes

Kristjana Steingrímsdóttir - Jana heilsukokkur um jafnvægið á jólunum, frábærar hugmyndir að jólagúmmelaði með heilsuívafi og ljúffenga hollustubita

Episode 58 Published 10 months ago
Description
🎄 Gestur þáttarins: Kristjana Steingrímsdóttir – Jana heilsukokkur

Í þessum þætti spjöllum við við Kristjönu Steingrímsdóttur – Jönu, heilsukokk, heilsuráðgjafa og skapandi matgæðing sem hefur farið einstaka vegferð í eldamennsku og hollustu.

Jana var um árabil kokkur á Happ veitingastaðnum í Lúxembúrg, sem enn í dag er talinn einn sá besti og þekktasti á sínu sviði. 

Árið 2022 flutti Jana heim til Íslands, þar sem hún hefur síðan helgað sig því að kenna fólki að elda holla, einfalda og skapandi rétti, fara út fyrir boxið og njóta matar með meiri meðvitund – án þess að fórna bragði eða gleði.

🥗 Í þættinum ræðum við meðal annars:
  • Vegferð Jönu

  • Jólagúmmelaði með heilsuívafi – hvernig má njóta jólanna án samviskubits

  • Heilsusamlegt jólakonfekt og nammi – einfaldar, sniðugar og girnilegar uppskriftir

  • Flott meðlæti á jólaborðið

  • Ráð til að undirbúa vikuna í matargerð – skipulag, einfaldleiki og tímasparnaður

  • Fjölskyldan og eldamennskan – hvernig börn og fjölskylda taka þátt í matargerðinni

  • Hvernig Jana hjálpar fólki að vera skapandi í eldhúsinu og finna sína eigin leið

Jana er þekkt fyrir að gera hlutina aðgengilega, fallega og raunhæfa. Hún sýnir að hollur matur þarf ekki að vera flókinn, leiðinlegur eða takmarkandi – heldur getur hann verið skemmtilegur, fjölbreyttur og hátíðlegur.

Á vefsíðunni hennar jana.is má finna fjölda uppskrifta, fróðleik og innblástur fyrir daglegt líf og hátíðir.

Þáttur fyrir alla sem elska mat, heilsu, jólin – og að prófa eitthvað nýtt.

Hér fyrir neðan eru nokkrar uppskriftir sem Jana sagði okkur frá.

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Frosnir nammi molar (ca 18 molar)

Hráefni:

2 * 180 gr dósir grísk jógúrt sem þú elskar **

3 msk saxaðar pistasíur 

3 msk þurrkuð trönuber

50 gr brætt dökkt gæða súkkulaði 

Aðferð:

Byrjið á að hræra grísku jógúrtina við pistasíurnar og trönuber.

Setjið ca 1 matskeið af blöndunni í litlar hrúgur á bökunnarpappírs klæddan disk sem passar í ykkar frysti.

Bræðið súkkulaðið og dreifið yfir molana - frystið yfir nótt og njótið 

 

**ef þú notar hreina gríska jógúrt er gott að blanda smá vanillu og sætu og hræra vel saman

 

Hollustu nammimolar með trefjum, og frábærri næringu 

Bleikir molar

Hráefni:

3 bollar kókosmjöl

1 bolli möndlumjöl

1/3 bolli fljótandi kókosolía

1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp

1 tsk vanilla

1 msk gott rauðrófuduft 

Smá salt

Aðferð:

Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og fryst

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us