Episode Details

Back to Episodes

Ásókn erlendra dýragarða í íslenska lunda

Episode 577 Published 10 months ago
Description
Dýragarðar í Singapúr og Japan hafa reynt að fá íslenska lunda senda til sín í gegnum árin. Nú síðast í febrúar á þessu ári reyndi verslunarráð í Hokkaido-héraði að fá íslenska lunda. Árið 2010 reyndu yfirvöld í Singapúr að fá 200 íslenska lunda senda sem til stóð að hafa í sérstöku heimskautagerði í dýragarði, segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra. Þessum beiðnum er yfirleitt alltaf hafnað. Erpur Snær Hansen starfar hjá Náttúrufræðistofu Suðurlands og er sérfræðingur í lundum. Hann segir að það sé tvískinningur fólginn í því að þessum beiðnum sé hafnað og að um 25 þúsund lundar séu drepnir á Íslandi á hverju ári. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us