Episode Details
Back to EpisodesÁrni Óla, einsetumaður og refaveiðar
Episode 161
Published 3 months, 3 weeks ago
Description
Árni Óla var einn kunnasti og dugmesti blaðamaður landsins á fyrri hluta 20. aldar og var óþreytandi að kynna land og lýð fyrir lesendum Morgunblaðsins. Í þessum þætti verður gluggað í minningabók Árna þar sem hann segir fyrst frá einsetumanni sem hann fór að heimsækja sem blaðamaður og síðan rifjar hann upp minningar sínar frá refaveiðum í æsku.