Episode Details
Back to EpisodesVaraseðlabankastjóri segir að fjármálaeftirlit á Íslandi sé sterkt
Episode 551
Published 11 months, 1 week ago
Description
Björk Sigurgísladóttur, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits í Seðlabanka Íslands, segir að fjármálaeftirlitið sé sterk stofnun á Íslandi.
Starf Bjarkar í Seðlabanka Islands er ígildi þess sem áður kallaðist forstjóri fjármálaeftirlitsins. Eftir sameiningu FME við Seðlabanka Íslands árið 2020 varð þessi nýi starfstitill til.
Þetta helst settist niður með Björk á skrifstofu hennar í Seðlabanka Íslands og ræddi við hana um fjármálaeftirlit á Íslandi og hvernig þessi stofnun hefur verið styrkt frá bankahruninu árið 2008.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson