Episode Details

Back to Episodes

Erlend afskipti af íslenskri umræðu

Episode 558 Published 11 months ago
Description
Þeim sem fara fyrir öryggismálum í landinu er tíðrætt um fjölþáttaógnir sem steðja að Íslandi. Ógnum sem geta grafið undan lýðræði og innviðum samfélagsins. Ein af þessum ógnum eru erlend afskipti af íslenskri þjóðmálaurmæðu. Að hægt sé með skipulögðum hætti að hafa áhrif á almenningsálit í málum sem varða hagsmuni annarra ríkja. Viðhorf Íslendinga til stríða eða alþjóðasamvinnu svo sem Nato eða Evrópusambandsins. Við ætlum að ræða við fólk sem hefur miklar áhyggjur af þessu og vinnur við það alla daga að greina og bregðast við slíkum ógnum. Kristján Guy Burgess er alþjóðastjórnmálafræðingur sem hefur fengist við þessi mál meðal annars á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Afskipti af íslenskri þjóðmálaumræðu er líka höfuðverkur hjá Blaðamannafélagi Íslands þar sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us