Episode Details
Back to EpisodesSamruni Íslandsbanka og Skaga
Episode 542
Published 11 months, 3 weeks ago
Description
Greint var frá viðræðum um samruna Íslandsbanka og Skaga fyrr í vikunni.
Hugmyndin er sú að hluthafar Skaga fái 15 prósent af hlutafénu í sameinuðu fyrirtæki. Samlegðaráhrifin af samrunanum eru fyrst og fremst kostnaðarhagræði og arðsamari rekstur.
Skagi samanstendur af þremur fyrirtækjum: tryggingafélaginu VÍS, fjárfestingarbankanum Fossum og verðbréfafyrirtækinu Íslenskum verðbréfum.
Þrír stærstu einkafjárfestarnir í Skaga eru félög sem tengjast þekktum viðskiptamönnum eins og Bjarna Ármannssyni, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Sigurbirni Þorkelssyni.
Rætt er um samrunann við Snorra Jakobsson hjá greiningarfyrirtækinu Jakobsson Capital.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson