Episode Details

Back to Episodes

Barátta friðarverðlaunahafans við einræðið í Venesúela

Episode 543 Published 11 months, 3 weeks ago
Description
Helsti stjórnarandstæðingur einræðisherrans í Venesúela, Nicholas Maduro, fékk Friðarverðlaun Nóbels fyrir helgi. Hún heitir María Corina Machado og er 56 ára gömul. Maria Corina hefur í mörg ár barist gegn einræðisstjórnum Hugo Chavez og Nicolas Maduro. 26 ár eru nú liðin frá því að Hugo Chavez var kjörinn forseti í Venesúela og hefur landið gjörbreyst á þessum tíma og gildi lýðræðisins eru fótum troðin í landinu. Þessari þróun hefur Maria Corina barist gegn í meira en 20 ár. Fjallað er um sögu hennar í þættinum í dag. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us