Episode Details
Back to EpisodesÁralöng saurmengun í Varmá
Episode 521
Published 1 year ago
Description
Hrafnkell Karlsson bóndi í Ölfussi segir Hveragerðisbæ hafa sýnt af sér tómlæti í skólphreinsimálum bæjarins. Skólp frá Hveragerðisbæ hefur runnið út í bæjaránna Varmá síðastliðin ár og valdið saurgerlamengun í henni.
Pétur Markan bæjarstjóri í Hveragerði segir að bærinn sé að byggja nýja og betri skólphreinisstöð sem vonandi muni koma í veg fyrir þessa mengun. Hann segir að þessi skólphreinisstöð verði flaggskip hér á landi.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson