Episode Details

Back to Episodes

Gagnrýnin úttekt KPMG um RIFF

Episode 525 Published 1 year ago
Description
Fjölmargar ábendingar eru settar fram um starfsemi og rekstur kvikmyndahátíðarinnar RIFF í úttekt sem KPMG vann fyrir ráðuneyti menningarmála. Samtals setur KPMG fram 22 ábendingar sem ráðuneytið flokkar sem alvarlegar. Bæði er um að ræða ábendingar og umfjöllun sem snýst um rekstur og peninga og eins stjórnun og starfsmannamál kvikmyndahátíðarinnar. Framkvæmdastjóri og eigandi RIFF er Hrönn Marinósdóttir. Hátíðin hefur verið haldin í Reykjavík á hverju hausti síðastliðin 20 og er alltaf fjallað talsvert um hana í fjölmiðlum. Hrönn gagnrýnir úttekt og vinnubrögð KPMG í svörum til ráðuneytisins. Rætt er við Lilju Alfreðsdóttur, varaformann Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, sem óskaði eftir því að úttektin yrði unnin í fyrra. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us