Episode Details

Back to Episodes

Tap lífeyrissjóðanna á flugfélaginu Play

Episode 535 Published 1 year ago
Description
Frétt vikunnar á Íslandi er gjaldþrot flugfélagsins Play. Fáir bjuggust við því að félagið yrði gjaldþrota svona fljótt eftir nýlega 2,8 milljarða króna fjármögnun þess í skuldabréfaútboði í lok ágúst. Stærsti einstaki hluthafi Play var íslenski lífeyrissjóðurinn Birta með rúmlega 10 prósenta eignarhlut. Framkvæmdastjóri Birtu Ólafur Sigurðsson segir að gjaldþrot Play hafi komið honum í opna skjöldu. Birta tapar um 1700 milljónum á gjaldþrotinu. Rætt er við Ólaf um gjaldþrot Play og hvort fjárfesting Birtu í félaginu hafi verið mistök. Eins er Ólafur spurður að því hvort eittthvað misjafnt hafi átt sér stað í rekstri Play í aðdraganda gjaldþrotsins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us