Episode Details

Back to Episodes

Þórunn Jónsdóttir oft kölluð grasahjúkkan um hampplöntuna, marjúana, lækningamáttinn, endókanabínóíðakerfið, uppruna orðsins marijúana, pólitíkina og hagsmuni á bak við bann við ræktun plöntunnar

Episode 44 Published 1 year, 1 month ago
Description

🌿 Viðtal við Þórunni Thors Jónsdóttur – grasahjúkkuna 🌿

Hampurinn er ein elsta nytjaplanta mannkynsins – og hefur verið notuð til fatagerðar, byggingarefna, veiðarfæra og matar svo fátt eitt sé nefnt. Á sama tíma geymir hún öflug virk efni sem hafa verið nýtt í lækningaskyni um aldir.

Þórunn Jónsdóttir er einn stofnanda Hampfélagsins á Íslandi og hefur í yfir tvo áratugi verið ötul baráttukona fyrir lögleiðingu marijúana í lækningarskyni. Hún er þekkt undir nafninu grasahjúkkan og hefur aðstoðað fjölda Íslendinga að nýta efni úr hampi til heilsubótar.

Í viðtalinu förum við yfir:
✨ Muninn á iðnaðarhampi og marijúana
✨ CBD og THC – hvað þau eru og hvernig þau virka
✨ Nýlega uppgötvað endókanabínóíðakerfi líkamans sem hefur sérstaka móttaka fyrir þessi efni
✨ Hvernig hampur getur hjálpað við krabbameinum, taugasjúkdómum, flogaveiki og ýmsu fleira

✨ Hvaðan orðið marijúana kemur

✨ Um pólitíkina og hagsmunina á bak við bann við ræktun plöntunnar á síðustu öld og fram á þessa

✨ Stóra ráðstefnu í október um hampinn þar sem koma tugir sérfræðinga alls staðar að úr heiminum til að ræða og fræða um hampinn - hemp4future.is

💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem ætla að taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. Minnum á heilsudagana í Nettó sem standa nú yfir.

  • 🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna.

✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.

 

 

 

 

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us