Episode Details

Back to Episodes
Sprengisandur 7. september 2025 - Viðtöl þáttarins

Sprengisandur 7. september 2025 - Viðtöl þáttarins

Episode 1645 Published 10 months ago
Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Saga/Akureyri Óskar Þór Halldórsson, rithöfundur og blaðamaður,  Óskar fjallar um nýja bók sína um Akureyrarveikina, dularfullan veirusjúkdóm sem herjaði á Akureyringa fyrir 1950, lagði fjölmarga í rúmið og olli þeim sömu ævilöngum óþægindum. Aldrei hefur fundist skýringa á þessum sjúkdómi og hann veldur mönnum heilabrotum enn í dag.    Atvinnumál Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF.  Halla og Jóhannes ræða hugmyndir ríkisstjórnar um nýja atvinnustefnu, áherslur og framtíðarsýn. Hvert ber að halda, hvernig skapa Íslendingar arðbær störf um leið og réttindi fólks og kjör eru varin?   Stjórnmál/alþjóðamál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Þorgerður bregst við áskorun fjöldafunda um landið þar sem þess er krafist að ríkisstjórn grípi til raunhæfra aðgerða vegna stríðsins á Gaza, hvað getur ríkisstjórn Íslands gert og hver eru áform hennar?    Stjórnmál/stjórnmálaumræða Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður og Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur. Bryndís og Guðmundur ræða málfrelsi og skoðanaskipti undanfarinna daga, m.a. um akademískt frelsi og tilverurétt transfólks. Er málfrelsi ógnað á Íslandi, ríkir þöggun um tiltekin mál og hvernig birtist hún? 
Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us