Episode Details

Back to Episodes
Hluthafaspjallið | S02E20 | Þarf að skoða pólitíska óvissu um verð bankanna?

Hluthafaspjallið | S02E20 | Þarf að skoða pólitíska óvissu um verð bankanna?

Published 1 year, 4 months ago
Description

Skráð sjávarútvegsfyrirtæki hafa orðið fórnarlömb pólitískrar óvissu og markaðsvirði þeirra hefur lækkað um 50 milljarða króna í kjölfar veiðigjaldafrumvarps ríkisstjórnarinnar. Þarf að beita samskonar mati á hlutabréfaverð bankanna? Mun ríkisstjórnin gera breytingar á rekstrarumhverfi þeirra sem geta haft neikvæð eða eftir atvikum jákvæð áhrif á gengi þeirra? Alexander Jensen Hjálmarsson, stofnandi greiningarfyrirtækisins Akkurs, er í Hluthafaspjallinu í dag en hann hefur verðmetið alla skráða banka. Hann telur erfitt að taka tillit til pólitískrar óvissu í gengi þeirra en segir að ekki sé hægt að útiloka breytingar á hinum miklu sköttum sem bankakerfið býr við.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us