Episode Details
Back to EpisodesHnífaárásir II: Sjö prósent unglinga segjast ganga með vopn
Episode 254
Published 2 years, 5 months ago
Description
Aukin harka, hnífaburður ungmenna, hnífaárásir færast í aukana, vopnuð útköll sérsveitar aldrei verið fleiri. Þetta er kunnuglegt stef. Sjö prósent unglinga á höfuðborgarsvæðinu sögðust í fyrra ganga með hníf á sér. Þó ekki til að nota þá, heldur til að verja sig. Þetta er svolítið hátt hlutfall. Í þessum síðari þætti af tveimur ræðir Sunna Valgerðardóttir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og dósent við HÍ, um þróunina hér. Sömuleiðis heyrist í Ragnari Jónssyni, lögreglumanni og blóðferlafræðingi, þar sem hann lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðunni.