Episode Details

Back to Episodes
Hluthafaspjallið | S02E10 | Ægir Páll Friðbertsson í viðtali

Hluthafaspjallið | S02E10 | Ægir Páll Friðbertsson í viðtali

Published 1 year, 6 months ago
Description

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, fara yfir þróunina í síðustu viku en ársverðbólgan fór inn fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans nú í mars í fyrsta sinn síðan í desember 2020 og hjaðnar hraðar en greiningaraðilar gera ráð fyrir. Um leið er atvinnuleysið að aukast og ljóst að Seðlabankinn þarf ekki að berjast við þenslu í hagkerfinu og getur því lækkað vexti hraðar en ella. Fjárfestar þurfa gjarnan á súrefni að halda þessa dagana.

Þá kom Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Ice­land Sea­food In­ternati­onal (ISI), í heimsókn en félagið var með aðalfund sinn í vikunni. Greina má verulegan umsnúning á rekstri félagsins en um leið er sótt hart að sjávarútveginum með nýrri skattlagningu. Ægir Páll hefur áratuga reynslu af rekstri og ráðgjöf í sjávarútvegi og fer yfir helstu vendingar.

Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us