Episode Details

Back to Episodes
Tölvuárásir - Kristján Örn Elíasson ræðir við Theódór R. Gíslason

Tölvuárásir - Kristján Örn Elíasson ræðir við Theódór R. Gíslason

Episode 780 Published 1 year, 9 months ago
Description

Gestur minn í þættinum um netöryggismál er Theódór R. Gíslason stofnandi netöryggisfyrirtækisins Syndis og stofnandi og framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Defend Iceland.

 

Í villuveiðigátt Defend Iceland herma öryggissérfræðingar aðferðir tölvuglæpamanna við leit að öryggisveikleikum.

 

Tölvuglæpamenn finna öryggisveikleika eða villu í net-, tölvu- og hugbúnaðarkerfum og nýta sér þá til að brjótast inn og ná stjórn á kerfunum. Markmið þeirra er að ná stjórn á hugbúnaði kerfanna, taka vefi niður eða komast yfir stafræn gögn og halda þeim í gíslingu þar til fórnarlömb árásanna greiða lausnargjald fyrir gögnin.

 

Markmið Defend Iceland er að finna öryggisveikleika á undan tölvuglæpamönnum og sjá til þess að þeir verði lagfærðir áður en hægt er að valda alvarlegum skaða.

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us