Episode Details

Back to Episodes
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E03 | Hugvíkkandi meðferðir mun öflugri heldur en hefðbundnar meðferðir gegn fíkn

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E03 | Hugvíkkandi meðferðir mun öflugri heldur en hefðbundnar meðferðir gegn fíkn

Published 1 year, 9 months ago
Description

Sara María Júlíudóttir, sálarmeðferðarfræðingur með sérþekkingu á hugvíkkandi efnum, er nýjasti gestu Spjallsins með Frosta Logasyni. Sara er ein þeirra sem tel­ur að framtíð geðlækn­inga sé fal­in í notk­un hug­víkk­andi efna í formi meðferða og und­ir eft­ir­liti og stjórn fagaðila. Hún hefur sjálf mikla reynslu af slíkum meðferðum en hana langar að sjá Ísland verða leiðandi í rannsóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækningaskyni. Sara hélt stóra alþjóðlega ráðstefnu um hugvíkkandi efni fyrir tveimur árum, sem þótti gríðarlega vel heppnuð, og nú ætlar hún að endurtaka leikinn í Hörpu í lok febrúar. Þar hafa boðað komu sína mörg af stærstu nöfnum þessara fræða á heimsvísu og ljóst að áhugamenn um hugvíkkandi efni mega alls ekki láta þennan viðburð framhjá sér fara. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us