Episode Details

Back to Episodes

Andri Iceland um öndun og áhrif hennar á lífsgæði okkar ásamt kulda - og samspil öndunar og kuldaþjálfunar.

Episode 11 Published 1 year, 9 months ago
Description

 

Vilhjálmur Andra Einarsson, betur þekktur sem Andri Iceland,  umbreytti lífi sínu með öndunartækni og kuldaþjálfun. Hann deilir því hvernig rétt öndun og kæling getur haft gríðarleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu – og hvers vegna einfaldar venjur geta gjörbreytt vellíðan okkar.

Andri hefur um árabil dýpkað þekkingu sína á því hvernig öndun getur haft stórkostleg áhrif á lífsgæði okkar og líðan. Hann miðlar fróðleik um öndunartækni og æfingar sem geta verið lykillinn að betri stjórn á streitu, kvíða og öðrum áskorunum daglegs lífs. Hvernig getum við byggt upp þol fyrir koltvísýringi, aukið úthald og fundið meiri hugarró á sama tíma.

Andri útskýrir hvers vegna margir anda vitlaust, hvernig það tengist streitu og sjúkdómum, og hvernig við getum tekið öndunina í okkar eigin hendur. Hann talar einnig um kraft kulda, áhrif þess á hormónakerfið, ónæmiskerfið og hvernig hægt er að nota einfaldar kuldaæfingar til að bæta daglegt líf.

Viðtalið er fullt af hagnýtum ráðum og nýrri sýn á mikilvægi öndunar – og eins og Andri segir sjálfur: „Þetta er svo einfalt að flestir trúa ekki að það virki.“

🎧 Hlustaðu á þáttinn og lærðu hvernig þú getur nýtt öndun og kulda til að bæta líðan þína!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar! 

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu 

Happy Hydrate  - Þinn besti æfingafélagi - einstök blanda af steinefnum og söltum sem hraðar endurheimt og bætir vökvajafnvægi.

Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna 

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu

Saltverk - sjálfbært, hreint, óunnið íslenskt salt - þurrkað með jarðhita og inniheldur frá náttúrunnar hendi öll stein- og snefilefni

 

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us