Episode Details

Back to Episodes
Hluthafaspjallið | S01E01 | Gull en ekki grænir skógar

Hluthafaspjallið | S01E01 | Gull en ekki grænir skógar

Published 1 year, 10 months ago
Description

Í þessum fyrsta þætti Hluthafaspjallsins á Brotkast.is fara þeir félagar Jón G Hauksson og Sigurður Már Jónsson hispurslaust yfir málin og það sem efst er á baugi í efnahagslífinu og skráðum fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þeir ræða um gullvinnslu á Grænlandi og auðvitað mál málanna; kosningarnar á laugardag. Þá ræða þeir einnig verðbólguna, vextina, nýgerða samninga lækna og hjúkrunarfræðinga og viðræðurnar við kennara. Einnig er farið yfir kauparétti starfsmanna í fyrirtækjum og hvort slíkir samningar þjóni eigendum fyrirtækjanna; hluthöfunum. Rætt er um Alvotech, Marel, Haga í Færeyjum og afkomu stóru viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins – ásamt auðvitað því sem er að gerast í Bandaríkjunum sem og hugsanlegt viðskiptastríð við Evrópusambandið. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us