Episode Details

Back to Episodes
22. Gleym þér ei. (Alzheimer frá sjónarhorni aðstandenda og hvernig sjúkdómurinn tekur oft toll af heilsu umönnunaraðlila, líkamlega, andlega og félagslega.) Ragna Þóra Ragnarsdóttir

22. Gleym þér ei. (Alzheimer frá sjónarhorni aðstandenda og hvernig sjúkdómurinn tekur oft toll af heilsu umönnunaraðlila, líkamlega, andlega og félagslega.) Ragna Þóra Ragnarsdóttir

Season 1 Episode 22 Published 2 years, 3 months ago
Description

Í þættinum ræðir Erla við Rögnu Þóru Ragnarsdóttur, eiginkonu Guðlaugs Níelssonar eða Gulla eins og hann er ávallt kallaður. Gulli sem er 67 ára gamall greindist með Alzheimer fyrir tæpum 6 árum síðan og sjúkdómurinn er nú kominn á það stig að suma daga nær Ragna ekki augnsambandi við hann, aðra daga í sekúndu og sekúndu og einstaka sinnum fær hún bros. Brosin hans eru samt orðin mjög takmörkuð auðlind og gefin sparlega.

Í þessu einlæga viðtali segir Ragna Þóra frá sjúkdómnum frá sjónarhorni aðstandenda og hvernig hann tekur oft toll af heilsu ummönnunaraðlila, líkamlega, andlega og félagslega. Hún hefur verið vakin og sofin yfir velferð Gulla alla tíð og aldrei meira en þegar hann hætti að geta það sjálfur. Að mörgu er að hyggja og hún tekur þátt í því öllu. Hún heimsækir hann daglega á hjúkrunarheimilið og er með honum í hans umhverfi, blandar geði og annast um hann. Það skín í gegn skilyrðislaus ást.

Ragna Þóra segir heilsu ekki snúast um það að vera ekki veikur heldur viljann og getuna til þess að sigrast á mótlæti. Heilsa snýst um stöðugan lærdóm, endurnýjun og þroska.

Áhugasamir geta fylgjst með einlægum skrifum Rögnu Þóru á Facebook

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us