Episode Details

Back to Episodes
15. Afreksíþróttir, andlegur styrkur, árangur og heilsa. Ásdís Hjálmsdóttir

15. Afreksíþróttir, andlegur styrkur, árangur og heilsa. Ásdís Hjálmsdóttir

Season 1 Episode 15 Published 2 years, 5 months ago
Description

Hlustendur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum fá 20% afslátt af Under Armour og Mizuno vörum í Altis Bæjarhrauni, Altis.is og Under Armour verslun í Kringlunni út október 2023 með því að nota kóðann "heilsuerla".

Í þættinum ræðir Erla við Ásdísi Hjálmsdóttur, hugarfarsþjálfara, íþróttakonu og fyrrum afrekskonu í frjálsum íþróttum um afreksíþróttir og heilsu, hugarþjálfun og hvað getur haft jákvæð áhrif á almenna heilsu okkar.

Ásdís var fremsti spjótkastari landsins í mörg ár og keppti á þrennum Ólympíuleikunum árin 2008, 2012 og 2016 auk þess að keppa á ótal Evrópu- og heimsmeiraramótum.

Ásdís segir á heimasíðu sinni að skýr draumur, markviss markmiðasetning og óseðjandi hungur í að gera stöðugt betur sé ástæðan fyrir því að hún var heimsklassa spjótkastari í næstum 20 ár. Hún segist ekki hafa verið hæfileikaríkasti íþróttamaðurinn en var alltaf tilbúin að leggja mikið á sig til þess að nýta þá hæfileika sem hún hafði til fulls. Það kom henni ekki bara á þrenna Ólympíuleika, það skilaði henni líka doktorsgráðu á sama tíma.

Ásdís vinnur nú með íþróttafólki um allan heim og hjálpar þeim að fá andlegan styrk til þess að þeir geti nýtt hæfileika sína til fulls og náð árangri sem það hefði aldrei trúað að væri mögulegur.

Áhugasamir geta fylgt Ásdísi á Instagram

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Listen Now

Love PodBriefly?

If you like Podbriefly.com, please consider donating to support the ongoing development.

Support Us